Info: Mínir sleggjudómar í bókakápurýnispúkk Fréttablađsins fyrir jólin 2006
Ţetta er pöntuđ gagnrýni og skrifuđ í upphrópanastíl eins og venja er međ slíkar greinar
Í höggţungaröđ – sú besta nr. 1 og sú fimmta besta nr. 5.
Síđar sú nr. 1. verst og sú nr. 5 nokkurn veginn fimm sinnum verri.

Ágćtlega hannađar bókakápur áriđ 2006:

1. Eitur fyrir byrjendur eftir Eirík Örn Norđdal. Gefin út af Nýhil.
Nýhil útgáfan skarar augljóslega langt framúr samkeppnisađilum í útgáfu hvađ varđar hönnun bókakápa í ár. Hver bókin frá Nýhil er annarri fegurri; bókin fer vel í hendi, ţađ er gott ađ koma viđ hana; áferđin er bókaormavćn, teikningin á kápunni gefur fögur fyrirheit um góđa kímnigáfu og bitastćtt innihald. Síđast en ekki síst er leturmeđferđ (innan sem utan) og prentun til fyrirmyndar.

(Nokkurn vegin ţađ sama má segja um bćkurnar Svavar Már & 20. öldin eftir Hauk Má Helgason og Fenrisúlfinn eftir Bjarna Klemenz. Ţessar bćkur eru í sömu útlitslínu en Eitur fyrir byrjendur skartar bestu kápunni í línunni vegna ţess ađ ţar tekst sérlega vel upp međ myndgerđ á titli – svo kemst ég ađ ţví um jólin hvort skáldverkiđ stendur undir ţeim vćntingum sem hönnuđurinn skapar mér.)

2. AÁBCDĐEÉFGHIÍJKLMNOÓPQRSTUÚVWXYÝZŢĆÖ eftir Óttar Martin Norđfjörđ. Gefin út af Nýhil.
Ţetta er ótrúlega falleg lítil ljóđabók. Kápan myndlýsir á nútímalegan hátt ţeirri ýktu kerfishugsun sem liggur ađ baki kveđskapnum og sýnir mikla leikgleđi í sömu andrá. Falleg og lýtalaus leturmeđferđ ásamt sérdeilis góđri prentun. Tíđarandinn er yfir ţessari sérlega vel gerđu bókakápu.

Svo varđ ţetta erfiđara:

3. Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurđardóttur. Gefin út af Veröld.
Ummm. Falleg ljóđrćn kápa og klassísk uppsetning á letri sem er góđ ef frá er taliđ biliđ á milli Y og r í nafni höfundar. Blóđslett líkklćđiđ á kápunni sem hefur drukkiđ í sig ásjónu fallegrar konu er leyndardómsfullt, vel gert og sannfćrandi. Mikiđ hefđi samt veriđ gaman ef hendur tilvonandi lesenda hefđu notiđ sömu velvildar og augu međ betri pappírsnotkun og prentun.

4. Sendiherrann eftir Braga Ólafsson. Gefin út af Máli og menningu.
Örugglega vandađasta bókakápan á vegum Eddu í ár. Pappírinn er fallegur og ţćgilegur viđkomu, litir harmónera. Prentunin er ágćt og möguleikar í prentverki notađar kápunni til framdráttar. Kápan passar sögunni áreiđanlega vel. Leturmeđferđin er ţó ekki nógu góđ; meginmálstextinn er jafnađur og götóttur sem er miđur ţar sem annađ er einhvern veginn sallafínt og bókaormavćnt.

5. Tryggđarpantur eftir Auđi Jónsdóttur. Gefin út af Máli og menningu.
Stílhrein kápa og efnismeđferđ. Myndskreyting á kápu skýrir sögnina í titilinum og letriđ vinnur vel međ heildarmyndinni.

(Af barnabókum má segja ađ barnaleg og sveitó leturmeđferđ eyđileggur í undramörgum tilfellum kápur sem ađ öđru leiti eru góđar. Undantekningar á ţessu eru (mjög) fljótt á litiđ bara tvćr í ár: Stór skrímsli gráta ekki og kannski Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar. Drekafrćđi, drekabókin mikla „eftir“ Dr. Ernest Drake er síđan skemmtilegt dćmi um mjög metnađarfulla og fallega hönnun á barnabók.)

Verr hannađar bókakápur áriđ 2006:

Ţví miđur er hér af nógu ađ taka og í raun ekkert um ţađ ađ segja nema oj, en leiđinlegt – gerum betur nćst. En hér er listi yfir fimm (sex) kápur sem pirra mig sérstaklega eftir mína (tiltölulega lauslegu) athugun:

(1. Lifum lífinu hćgar eftir Carl Honoré. Gefin út af Vöku Helgafelli.
Mesta fúskkápa ársins. Einstaklega ljót, illa gerđ og ósannfćrandi sem andlit bókverks fyrir fólk í leit ađ vitund sinni.)

2. 1 1/2 bók Hryllileg saga eftir Guđberg Bergsson. Gefin út af JPV.
Hvernig er hćgt ađ gera höfundi sem ţessum slíkan skađa? Ţessi kápa er svo ótrúlega gömul og fúl – og einhvern veginn fráhrindandi í andleysi sínu og hráslaga ađ ţađ er illa gert. Hryllileg kápa.

3. Íslensk bókmenntasaga gefin út af Máli og menningu.
Sögulega andlausar og leiđinlegar kápur og erfitt ađ trúa ţví ađ í íslenskri bókmenntaarfleifđ megi ekki finna meiri andagift sem mćtti ţýđa á myndmál. Trúlega hefur jafnrćđisreglan boriđ hönnuđinn ofurliđi.

4. Borđađi ég kvöldmat í gćr? eftir Óskar Magnússon. Gefin út af Citizen Press.
Sjónrćn truflun. Furđulegt leturval, hvítir hlemmar og „dropp shadow“ ofan á flata ljósmynd af tweed efni? Skil ekki upp né niđur. Mér er sagt ađ hér sé á ferđinni smellin vísun í klćđaburđ höfundar – en hvađ veit ég. Ég ţekki hann ekki.

5. Sá yđar sem syndlaus er eftir Ćvar Örn Jónsson.
Ţessi kápa er dauđ eins og malbik. Flatneskjan og grámyglan er međ ólíkindum og dapurleg tilraunin til ađ skapa dýpt í verkiđ međ skugga undir klunnalegu letrinu. Formbyggingin er í lagi en fellur fyrir dauđagrímu heildarsvipsins. Prentunin er afleit.

6. Undir himninum eftir Eirík Guđmundsson. Gefin út af Bjarti.
Ţessi kápa er sjúklega pirrandi í ljósi ţess hve dásamlega ţunglyndisleg kápan á 39 ţrepum er. Bleikt og Eiríkur Undir Himninum Guđmundsson kryddađ međ hnyttnum viđsnúningsleik fyrir áhugasama. Ţessi bleiki „kommersialismi“ veldur vanlíđan og leturmeđferđin er klunnaleg og kápan á allan hátt bara stórundarleg.

Ađ lokum; er ekki merkilegt hvađ hugmyndin um ađ gera „commercial“ hönnun er ađ fara illa međ suma útgefendur (Eddu, JPV, Vöku Helgafell...) hér á landi? Ég sting upp á andspyrnuhreyfingu (eđa leynifélagi) bókaorma og höfunda til ađ koma í veg fyrir frekari slys og nískusyndir.